föstudagur, desember 09, 2005

blandaður i sjötta veldi

Ég held að það sé alger óþarfi að lýsa muni á sex lýsingarorðum sem öll þýða “blandaður”, þ.e.a.s. blandaður, blandaður, misleitur, blandaður, misleitur og já misleitur. Komst samt að því að þó að öll þessi orð hafi sama merkingarfæðilega bakgrunninn er ekki hægt að finna eitt samheiti yfir þau né er hægt að finna eitt orð yfir þau sem hefur orðabókalegan bakgrunn. Náðu þið þessu? Nei ekki ég heldur en samt var þetta nú niðurstaðan sem ég fékk á annars svo glötuðu Ananlyse sémique prófinu mínu. Var svo sleginn eftir það að það var ekkert annað að gera en að kíkja í bæinn á eftir. Svona er gaman að vera til. Bæjarferðin var samt árangursrík, gat aðeins skoðað jólagjafir og svo fyllti ég bakpokann af dýrindis fois gras og fíkjusultu, er sko byrjuð að safna gúmmelaði til þess að taka með mér heim um jólin, aldeilis yndislegt. Ágætt að byrja aðeins að versla allt sem er á gúrmetlistanum manns!
Já aþað er stuð en ekki nógu mikið er ekki að ná að drulla út úr mér eins og tveimur bókagreiningum sem ég þarf eiginlega að vera búin með svo að ég geti farið að skoða jólaljósin og fengið mér nokkur irish coffee með þeim. Merde alors!
Það er varla gaman að lesa þetta en afsakið, lífið er ekki alltaf eins glæst og í Glæstum Vonum. Er samt búin að vera mikið að velta fyrir mér hegðun ástfanginna para í metróinu svo það er aldrei að vita hvað kemur næst!