sunnudagur, nóvember 27, 2005

Mr Cab Driver

Ég er búin að komast að því að leigubílstjórarnir hérna eru alveg ótrúlega viðkunnalegir, það er alltaf hægt að ræða við þá um heimsins hluti. Bara núna um helgina tók ég tvistvar leigubíl (veit að það er aðeins að vera að lifa um efni fram en það er bara svo kalt núna!) og í bæði skiptin lenti ég í alveg ótrúlegustu umræðum. Fyrsti leigubílstjórinn þóttist ekki þekkja götuna sem ég vildi fara á og ég fór í kortabókina góðu og fann hana fyrir hann, sem kemur sögunni svo sem ekki við nema að hann viðurkenndi undir lokinn að hafa verið að ljúga að mér, einhver aðferð til að testa kúnna eða eitthvað, je ne sais plus!. Svo fórum við að ræða stöðu kvenna á vinnumarkaði, var hann fastur á sinni skoðun að konan eigi að vinna minna en hann og síðan eigi hún að vera heima og elda matinn og slaka á. Reyndi ég allt sem ég gat að koma vitinu fyrir hann og úskýrði fyrir honum hvernig þetta væri heima á klaka. Benti honum síðan á að ef að konan hans ynni aðeins meira og hann þar af leiðandi aðeins minna hefðu þau meiri tíma saman. Hann var ekki lengi að blása þessarri röksemdarfærslu minni í burtu þar sem hann sagði að það gengi ekki því þá myndu þau eignast allt of mikið af börnum! Og þar með var málið útrætt. Skemmtilegur hugsunarháttur þrátt fyrir að ég sé ekki sammála honum.
Seinni bílstjórinn velti því mikið fyrir sér með hverjum ég byggi og hvort okkar samband væri meira en vinasamband. Út frá þeim spurningum fórum við að ræða sambönd kynjanna á 21.öldinni og hvernig þeim fylgji oft vandamál sem varða fjölskylduna og svo framvegis. Sem sagt hjartans mál, og þar með verður sú umræða ekki útlistuð frekar en ég get sagt að hann benti mér á ýmsa hluti sem ég hafði ekki pælt í. Ekki segja mér svo að leigubílstjórar séu leiðinlegt fólk (með einni undantekningu þó!)

Já það er aldrei lognmolla hér í borg ljósa og óeirða, þar sem rauðvínið er gott og rafmagnið dýrt. Sem flytur okkur að annarri sögu, hef nefninlega hafið feril minn á glæpabrautinni og ekki amalegt að hefja hann hér. Fékk kennslu hjá leigusalanum mínum í að stoppa rafmagnsmælinn svo nú er hann hættur að ganga, ég er hætt að borga og síðast en ekki síst er ég farin að hita húsið. Ha ha ekki fleiri kaldar tær hér á bæ.

Sjálfsuppgötvun dagsins : Já, ég er svona löt.