We were the rock'n'roll kids...
Ég verð nú bara að segja að það er einhvern veginn ekki mikið að gerast í hausnum á mér þessa dagana, kannski er það að maður er minna að fylgjast með fréttum og svoleiðis sem veldur þessri pælingarlægð um lífið og tilveruna. Vonandi að þessi hluti hausins fari að vinna aðeins betur, það er svo erfitt að vera svona hugsunarlaus. Hef samt uppgötvað ýmislegt undanfarið t.d. það að skólinn minn er vægast sagt stórhættulegur, húsið á að rífa eftir tvö ár. Ekki vegna þess að það sé orðið gamalt ó nei, heldur er það fullt af asbesti og því stórhættulegt heilsu allra alveg ótrúlegt. Hef óstaðfestar heimildir um að þegar hafi sextíu manns dáið vegna þess (skrítni kallinn sem hangir fyrir utan allan daginn og mótmælir). Eftir þessa uppgötvun held ég að það sé alveg búið mál að klósettsetur komi í skólann á mínum tíma þar, hvað þá mannsæmandi loftræsting. Spurning um að fara að kenna frökkunum að nota svitalyktaeyði það gæti kannski lagað smá!?
Annars er lífið ljúft, er bara búin að koma mér vel hérna, erum bara í klassaíbúð hérna og erum með alveg stórskrítinn en stórskemmtilegann leigusala sem kemur öðru hvoru í heimsókn. Hann er ávallt til í skemmtilegar umræður um heimsmál, tónlist, pólitík og bara allt milli himins og jarðar, enda er hann líka rithöfundur og skáld og lifir því bóhemlífi. Skondinn karakter, en hann var hér á sunnudag í kaffi og bauð okkur Ace sambýlingi að búa hérna á næsta ári líka enda líkar honum bara voða vel við okkur. Það hefur kannski eitthvað að gera með að við þrifum hérna áður en við fluttum inn enda var þetta líka bara ógeðis eftir fyrri leigendur. Vona samt að hann skiptir ekkert um skoðun þegar hann fær næsta vatnsreikning enda voru síðustu orð hans þegar við tókum við íbúðinni: “And don’t go all Egyptian on me with the water girls”. Segi bara að það fór mikið vatn í að þrífa allt ógeðið! Kemur í ljós!
Það styttist óðum í helgina sem er fínt því moi era ð fara á tónleika með stórhljómstinni Rock and Roll, ekta frönsk og spilar svona NY rokk, hlakk mikið til að fara á tónleika. Er búin að heyra nokur brot af tónlistinni þeirra og er bara bjartsýn, ekki sakar að þekkja þá aðeins (hvernær er ekki kúl að þekkja hljómstinna?) og síðan eru þeir allir að sprengja myndarlegheita-stuðulinn og eiginlega bara allir vinir þeirra líka. Djíses þetta er alveg svakalegt, maður missir bara kúlið í kringum svona folk! Nóg með það, það verður sko hoppað, dansað, æpt og öskrað á föstudaginn!

<< Home