Rauðvinið er gott
Það verður ekki annað sagt en að það sé gott að vera til ákkurat núna. Við Ása erum núna alveg að vera búnar að koma okkur fyrir hérna í fínu íbúðinni okkar. Hún er öll að koma til eftir að vera búnar að nota óheyrilega mikið af hreinsiefnum og fara með nokkur sett af gúmmihönskum og tuskum. Já við eyðum nefninlega kvöldunum í að að skúra loftin og annað eins. Þetta er kannski aðeins ýkt en við erum nú samt búnar að skúra allaveganna tvisvar loftið hérna í stofunni. Já það er gaman að vera til.
Er búin að ákveða það að láta alla fúlu frakkana lönd leiða og ætla að hafa gaman að þessu öllu saman. Er búin að vera að æfa mig í að vera með fýlusvip í lestinni og svoleiðis eins og allir aðrir en það var svo leiiðinlegt að ég ætla bara að halda áfram að vera hávær og hlæja að öllu saman, stundum fær maður nefninlega bros á móti,það er ýkt kúl!
Það voru svo íslendingar hérna um daginn sem voru svo góðir að færa mér yndislegu kaffikönnuna mína svo nú er dýrindiskaffi á boðstólnum hérna á Mathurin Régnier, allir velkomnir í kaffi. Síðustu dagar hafa verið fínir það er alveg massa hiti hérna og við erum að kafna í skólanum, er alveg hætt að reyna að vera í einhverjum fötum nú er bara að flagga hvítu spírunum og halda smá sönsum hérna í hitnaum. Gott plan. Helginer á næsta leiti aldrei að vita hvað gerist. Síðusti helgi var okkur boðið ó partý hjá Paul ,sérlegum leiðsögumanni okkar hér næsta árið, og við stelpurnar vorum alveg lens yfir fallegu mönnunum sem við hittum þar. Okkur var eiginlega farið að líða bara illa þair voru allir svo lekkerir. Pældum mikið í því hvort að maður þyrfti að vera súpermódel til að fá að vera í þessum vinahóp en þetta var bara stuð og við náðum að redda okkur Dj giggi og tónleikum með hljómstinni Rock’n’Roll. Hlökkum mikið til að sjá þessa spaða á sviði. Bara fjör. Jæja rauðvínið er farið að segja til sín best að skella sér í rúmið áður en ég bulla meira!! A+

<< Home