Timabil
Svo virðist sem síðustu vikur hafi einkennst af einstakri framkvæmdarleti og öðru áhugaleysi en nú á því að fara að ljúka, ég nenni þessu ekki lengur. Ætla að hætta að segja “á morgun” því að á morgun segir sá lati og ég er hætt að vera löt. Og hana nú!
Sumarið er auðvitað búið að líða hjá eins og stormsveipur, engin breyting þar á. Ekkert hefur breyst alltaf jafn ömurlega sveitt að vera í vinnunni og djammið jafn sveitt ef ekki sveittara. Já eins og ég sagði tími til kominn að breyta til og það hófst um helgina, stóð hér úti í verstu þynnku sumarsins og málaði húsið að utan ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum sem voru einnig í misgóðu ástandi en þetta hafðist og húsið er vægast sagt glæsilegt. Einnig fékk fregnir af því að hún Eliana Ýr Zorzi væri komin í heiminn, heilbrigð og sæt og óska ég hinum fallegu foreldrum innilega til hamingju með blómarósina.
Nýtt tímabil er hafið.
Spakmæli dagsins : Það er aldrei og seint að snúa við blaðinu.

<< Home