miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Piltur og stulka

Saga um stúlku.

Stúlka hittir franskan pilt á bar á Íslandi og spjallar. Stúlka kveður og franskur piltur heldur til síns heima til Parísar, borg ljósa og fegurðar. Meira en ár líður og stúlka sem nú er flutt til borg ljósanna og hefur fyrir löngu gleymt frönskum pilti, hittir bandaríska stúlku á bar í París og með þeim tekst vinskapur. Stúlkur spjalla og stúlkur uppgötva að franski pilturinn sem íslensk stúlka hafði hitt á bar á Íslandi er enginn annar en sérlegur piltur bandarísku stúlku sem íslensk stúlka hitti á bar í París. FIN

Hverjar eru samt líkurnar á því að þetta gerist! Alveg ótrúlegt hvað heimurinn er lítill stundum. Gaman að því samt!

Það eina sem er að gerast þessa stundina er það hvað ég hef mikið að gera og kem samt engu í verk. Kannski ég geti bara prófað að fara í verkfall eða « Grève » eins og landinn segir og gerir líka mjög oft. Bara síðan ég kom hafa lestirnar farið svona fimm sinnum í grève og ætla ekkert að hætta því heldur. Ég held ró minni því alltaf kemst ég á leiðarenda. Nú er til dæmis geislaspilarinn á heimilinu líka farinn í grève, veit ekki hvað honum stendur til. Kannski er hann ósáttur við vinnutímann eða efnið sem hann fær í hendurnar. Hver veit, ég er bara róleg yfir þessu öllu saman og bíð eftir að hann sjái að sér og hætti þessu. Þangað til ætla ég bara að hunsa hann, sjáum hvað hann heldur það lengi út! Og hana nú.