þriðjudagur, september 20, 2005

I love Paris in the ....

Hausinn hefur ekki verið að virka sem skildi undanfarið enda mikið að gera, hugsa um, spá og spekúlera og bara almennt vandræðast með.
Þeim kafla er nú lokið, nýr er byrjaður, já hinn ofurrómantíski , ýkt skemmtilegi, mega spennandi, ó svo merkilegi og um fram allt framandi kafli er hafinn. Við skulum bara segja að París er bjútifúl, en ekki gallalaus. Hef strax fengið smjörþefinn af öllu skriffinnskuæðinu og er ekki farin að hlakka til að eiga við það en ætla bara að vera bjartsýn og jákvæð með það.

Staðan í dag er eftirfarandi:

Bjútifúl, Kaffið vont, Bjórinn góður, Stórbrotið, Símkerfið gallaaaaað, Mennirnir sjarmerandi, Yfirþyrmandi, Búðirnar flottar, Garðarnir æðislegir (staður fyrir lúr), Spennandi, Ostarnir yndislegir, súkkulaðið líka, Frábært, Flókið, bjútifúl……