HMO 2005
Umm umm sumarið er sko komið, það er að segja ef við horfum algjörlega framhjá veðrinu. Kláraði vinnunna snemma á föstudaginn og henti mér í ríkisverslunina, stökk heim og þreif af mér sölufésið, skipti vinnugallanum út fyrir lopapeysunni, converse út fyrir gönguskónum, stakk ginpelanum í rassvasann ásamt frönsku verkamannanöglunum og hélt af stað. Áfangastaður var svalasti sveitabær norðan heiða og helginni var eytt þar ásamt flottasta og föngulegasta hópi suðvesturhornsins. Smáatriði og þegar út í það er farið öll atriði koma sem fæstum við svo út í þau verður bara ekki farið. Þeir sem eru ósammála og hafa kvörtun fram að færa eru vinsamlegast beðnir um að snúa sér til Neytendasamtakanna!
Spakmæli dagsins: Brostu!
Spakmæli dagsins: Brostu!

<< Home