sautjándi júní
Hæ hó jibbí jei og jibbí jei, það er kominn 17. júní...
Já sumir dagar eru góðir en aðrir eru hreinlega betri, eins og dagurinn í dag. Verð nú að viðurkenna að hann hefði mátt byrja betur en svona er það víst þegar maður hefur gaman af lífinu langt fram á nótt. Gærkvöldið var líka snilld enda var ég umkringd snillingum og öðlingum, geri svo aðrir betur að fá skutl heim með Gústa skógarhöggsmanni! Takk Gústi.
En nálægðin við þjóðhátíðartúnið hefur ýmsa kosti á svona dögum og áður en ég vissi af var húsið fullt af vinum og ættingjum sem ýmist átu pönnukökur eða flatmöguðu á túninu. Mál voru rædd, ættir raktar og skyldmenni uppgötvuð, hlegið og grátið og haft gaman af lífinu. Svo má ekki gleyma Heiðu hárgreiðslukonu sem grunlaus var að ganga framhjá húsinu þegar henni var kippt inn í kaffi en þessi kona ber ábyrgðina á flottustu klippingu sem ég hef nokkru sinni haft. Þegar ég var ca 7 ára settist ég í stólinn hjá henni og tilkynnti hátt og skýrt ég vildi fá strákaklippingu með skott sem ég og fékk og þar sem hún hafði úr miklu að moða mætti ég heim í götuna með síðasta skottið og sló öllum strákunum ref fyrir rass sem voru búnir að vera að safna í langan tíma. Geri aðrir betur og hana nú!
Já dagurinn er búinn að vera yndislegur en nú tekur við að fara að loka gluggum þar sem nálægðin við þjóðhátíðartúnið hefur líka sína galla og sannleikurinn er sá að sumar hljómst eru bara verri en aðrar, nefni engin nöfn en ég er viss um að hún sé svaka góð gulrót!
Spakmæli dagsins: Sælir eru þeir sem saddir eru.

<< Home