Bakstrætisstrákar
Litli bróðir útskrifaðist á föstudaginn úr menntaskóla, það er alveg merkilegt hvað við erum öll orðin fullorðin, það finnst mér allaveganna. Það var heljarinnarfjör hérna og alltaf janf gaman að hitta vini og ættingja. Bærinn var síðan tekinn með trompi, hef ekki skemmt mér svona vel lengi, held að þar spili Parísarferð inn í, smá djammfrí og sumarkoman, vei vei, bjart alla nóttina! Restin af helgina fór í vinnu, rólegheit og fjölskyldustemmningu enda stóra systir á landinu og þá virðist meirihluti af tímanum manns fara í að hanga heima í góðum félagsskap.
Efablandnar tilfinningar hafa verið í sambandi við það að vera byrjuð aftur að vinna, veit ekki hvort ég er ánægð með þetta eða ekki og ýmsar uppákomur hafa verið að draga úr mér, aðallega á samskiptahliðinni en ég ætla að sjá hvað verður. Alltaf að gefa sjéns! Glóðnaði samt aðeins á gamla neistanum í dag þegar ég laumaði mér í smökkun með brennslumeistaranum. Þetta var mjög skemmileg smökkun með fullt af leyniblöndum og pufubrennslum svo þetta reyndi á bragðlaukana og hugmyndarflugið. Frasar eins og reykt nautaleðurbragð og sterk fjósalykt með miklum jarðarbragði voru notaðir svo þetta var bara rokk. Vona bara að það kvikni almennilega á neistanum á næstu dögum annars...veit ég ekki!
Get svo ekki komist hjá því að segja frá að strákarnir mínir eru orðnir að mönnum ,ó já, Backstreet are back. Sá þá í sjónvarpinu og bara vá, sumar strákahljómst eru bara einfaldlega betri en aðrar. Þeir eru líka ágætt dæmi um : “sameinaðir stöndum við en sundraðir erum við ekkert” fílósófíuna í þessum heimi. Gaman að þessu!
...I’ve tried to go on like I never knew youI’m awake but my world is half asleepI pray for this heart to be unbrokenBut without you all I’m going to be is incomplete...Incomplete

<< Home