Pikkmíup
Gvuð minn góður!! Hvað tíminn líður hratt, ég hélt að áramótin hefðu verið í gær en það eru víst rúmir þrír mánuðir síðan. Merkilegt hvað manni finnst stundum lífið hafa staðið í stað á meðan tíminn flýgur áfram. Er einhver að kannast við sig í þessum hugrenningum? Þetta er allaveganna sú hugsun sem að situr efst í huga mér þessa dagana, en eins og með margar álíka hugsanir er ekki til góðs að dvelja of lengi við þær heldur snúa sér að einhverju öðru. Nú er semsagt komin tími til þess að vera ofurskipulagður, reka út sveimhugann, vera mega sega hugmyndaríkur og með úber súper sjálfstraust. Auðvitað að muna síðan að telja sjálfum sér trú um það að það sé engin sjón fegurri en hálfsofandi, slefandi manneskja á bókhlöðunni.
Rokkprikið fær pikk-up lína liðinnar helgi!
Rokkprikið fær pikk-up lína liðinnar helgi!

<< Home