þriðjudagur, mars 27, 2007

Og launin eru...hundakex!

Það má segja að ég fylgi alþjóðlegum reglun um meðferð dýra á heimilinu, þumalputtareglan er að drepa ekki að óþörfu. Ég sem sagt fylgi járnsmiðunum út um dyrnar, opna glugga fyrir býflugunum og passa að pússa gluggana ekki of mikið svo að fuglarnir fljúgi ekki á þá. Auk þess er alveg bannað að drepa kóngulær enda verður lítið úr berjauppskeru ef það er gert eins og lagið segir til um. Nú er hins vegar búin að vera lítil kónguló í herberginu hjá mér í nokkra daga og hún hefur svo sem ekki verið neitt fyrir mér að ráði, samt hugsaði ég með mér að meðan hún væri ekki nálægt rúminu mínu nennti ég ekki að spá í hennar daglega líf. Síðan í gærkvöldi þegar ég var að fara að sofa tók ég eftir að hún var komin inn á bannsvæði þ.e.a.s. upp á vegginn við rúmið mitt. Leist nú ekki á blikuna og var of þreytt til þess að fara að fylgja henni til dyra svo ég greip til örþrifaráða sem ég er ekki stolt af. Ég kallaði sem sagt á hundinn minn og plataði hann til þess að borða hana!!

Ég held að það sé óþarfi að taka það fram að hundakex og klór bak við eyrun kom við sögu!

Spurningin er hins vegar hvort að þetta dráp hafi verið að óþörfu eður ei?!