föstudagur, október 27, 2006

Stuck with a haircut that you don't understand!

Lífið er ljúft og vínið líka. Það er ekki annað hægt en að verða ástfangin af höfuðborginni eins og hún er búin að vera undanfarið, fullt af nýju fólki, gleði og glaum. Öll sameinuð í tónlistarveislu og tilheyrandi. Undirrituð fór ekki varhluta af því enda með heimsókn frá landi illalyktandi osta og óeirða, enginn ostur var með í för í þetta skiptið heldur bara gleði og glaumur. Eins og viðhæfir konungbornu fólki var farið og skoðað land og þjóð og lá leiðin austur á strönd þar sem nýjasta nýtt í uppistöðulónum var skoðað ásamt því að rannsaka sannindin á bak við svokölluð frönsk gen sem eiga að leynast í íbúum fjarðar eins. Því miður fundust einungis jarðneskar leifar gamalla sjómanna ásamt fána einum sem þeir hafa sennilega flutt með sér, hvað genin varðar er það líklegt bara þjóðsaga. Eftir hreint ótrúlegt stopp fyrir austan var síðan haldið í bæinn þar sem götur voru þræddar á milli tónleikastaða á milli þess sem þverskurður var tekin á menningarlegum mismuni hins annars snyrtilega frakka og síðan hins ódannaða íslendings. Ekki kemur á óvart að úr þessum diskúsjónum kom engin niðurstaða!!! Hins vegar var samband þessarra tveggja landa styrkt enn frekar með stofnun leynilegra samtaka sem ekki vilja láta nafns síns getið af ótta við að allir vilji vera með!!!!
Rokkprik fyrir alla frislandais, picolistes og svo fram eftir götunum.