Day old, day old blues
Það er svo margt sem ég vildi hafa sagt frá en gleymdist einhvern vegin í hringiðu hugleiðinga um veginn sem er framundan.
Mig langaði að segja frá því þegar ég:
-eyddi frábærri helgi í sveitinni, passaði litlu frænku mínu, fór í fjósið og mokaði flór
-þegar ég fór í fyrsta alvöru “vest kóp” húspartýið
-þegar við bökuðum crêpes salés hjá Heiðdísi og sötruðum rauðvín með
-þegar ég sat til borðs í fjóra tíma og upplifði magnaða matar- og vínveislu
-þegar ég átti afmæli og átti frábæran dag með vinum og fjölskyldu
-þegar börn vinkvenna minna fengu fallegu nöfnin sín
-þegar ég skellti mér á barinn, sötraði viský og kók og púaði kúbanskan vindil
-þegar ég skellti mér í hresst fertugsafmæli, í hælum og svaka skvísa. Raggi Bjarna skaut síðan óvænt upp kollinum og söng fyrir afmælisbarnið
-þegar ég fór að sjá íslenska dansflokkinn með Marion og Antoine
-þegar Þórhallur og ég sáum magnað tónleika með Dionysos og þræddum síðan laugarveginn
-þegar ég sat með fiðring í maganum og horfði á “Paris je t’aime” í annað skiptið og ekki það síðasta
-þegar ég skellti mér á óvissutónleika með Nosfell og upplifði alveg ótrúlega tónleika
-þegar ég lét Ásu með glöðu geði draga mig á djammið og niðrí bæ og við þræddum bari og horfðum í kringum okkur og gamalt andlit skaut upp kollinum
-þegar ég hef borðað brunch með brunchklúbbnum góða
-þegar ég fór að sjá leikritið Leg með Kötlu vinkonu og pissaði næstum í mig af hlátri
-og ekki má gleyma öllum kaffibollunum og spjallinu á Víðimelnum, takk!
Ég gæti talið upp ýmislegt fleira en ætla að láta staðar numið eins og er.

<< Home