Sviti og tár
Dagurinn tekur á móti manni í allri sinni dýrð þessa stundina, sólin á lofti og ásamt henni stigvaxandi hiti. Karlmennirnir eru komnir á stuttermaskyrtur, hundarnir liggja þvers og kruss allstaðar og nenna ekki að hreyfa sig, gosbrunnar eru komnir í gang og tónlistin líka. Stemmningin í húsin er í hámarki, gluggar hafa verið opnaðir, útvörp eru í gangi og blómin hafa fengið sinn sess á gluggasyllunum. Morgunkaffið er drukkið með volga goluna í andlitinu, alsírskir tónar berast frá útvarpi nágrannans í næsta húsi og frá strákunum á neðri hæðinni kemur angan af róandi jurtum. Þegar líða tekur á daginn er þvalt fólkið farið að liggja þvers og kruss út um alla borg á hvað græna bletti sem það finnur og þegar kvölda tekur fyllast staðirnir af sveittu fólki sem heldur á sveittum glösum og drekkur sér til ánægju og yndisauka. Hver vill yfirgefa annað eins stað?
Staðreynd dagsins: Dagurinn í dag markaði tímamót!
Staðreynd dagsins: Dagurinn í dag markaði tímamót!

<< Home