Gott ráð
Before you enter the palace of wisdom you have to decide: are you ready to rock?
Oh can you party with me?
Can you show me a good time?...
And have you ever stopped to ask yourself?
If you didn't come to party then why did you come here
Eftir að vera búin að hanga inni í viku sitjandi fyrir framan tölvuna eða með nefið ofan í bók er ekki annað hægt að segja en að útgangurinn á manni sé ekki upp á marga fiska. Grá, guggin og með bauga. Get nú ekki skilið það, ég var alveg viss um að eftir annað eins heilsuátak, þ.e.a.s. enginn bjór, snemma að sofa og þar fram eftir götunum yrðu útlitið nú aðeins skárra en nei, þvert á móti. Og hvað kennir þetta manni jú að það sé bara best að halda í gamlar hefðir, drekka bjór, fara seint að sofa og hafa gaman af hlutunum. Best að muna þetta bara í framtíðinni....ég sagði MUNA ÞETTA Í FRAMTÍÐINNI.....MÁ EKKI GLEYMA....EKKI GLEYMA.....EKK...
Uppgötvun dagsins: "poubelliste" er alls ekki svo óvitlaust þar sem "fabuliste" er gott og gilt orð samkvæmt honum litla Robba.

<< Home