Dagur ómegrunar
Megrunarlausidagurinn er í dag 6.maí, á honum á að reyna að sporna við heilsu- og megrunaræði sem svífur yfir vötnum auk þess að reyna að bæta ímynd fólks til holdarfars og þar á meðal draga úr gagnrýni til þeirra sem flokkast ekki undir mjónuógeð sem hertaka hvern einasta fersentimetra í blöðum og sjónvarpi þessa dagana. Ekki þekki ég þennan dag enda í fyrsta skipti sem hann er haldinn heima og vona ég bara að hann gangi vel enda þörf á þar sem við erum að missa okkur í útlitsdýrkun þessa dagana og upphefja fólk sem greinilega er á grafarbakkanum vegna hors í hverjum einasta fjölmiðli. Mér líst allaveganna ekki á þetta, svo virðist sem ekki er neitt til lengur sem heitir að vera venjulegur og gera hlutina innan eðlilegra marka. Ef á að grenna sig er best að gera það eins hratt og hægt er með « extreme » aðgerðum eins og að svelta sig eða fara og láta annað hvort skera fituna af sér eða soga hana í burtu. Lýtalæknar græða sem aldrei fyrr og sala laxerandi elíxera hækkar á móti minnkandi sölu mats. Þar á móti koma líka aðrir öfgar líkt og að fara yfir um í líkamsrækt, hlaupa þar til maður ælir og lyfta lóðum þar til maður er orðinn afskræmdur, má þar nefna svo kölluðu líkamsræktarkónga og drottningar sem erfitt er að gera sér grein fyrir hvors kyns er lengur, auk þess sem erfitt er að horfa á það án þess að fá illt í augum sökum ofurbrúnku, colgatetanna og áfasts harðlífissvip sökum vöðvaspennu. Best væri ef við öll kynnum okkur hófs og heldum okkur innan eðlilegra marka hvað varðar, mat, hreyfingu og brúnkumeðferða. Ég vona bara að við náum þessu einhvern tímann. Ég ætla allaveganna að njóta dagsins, vatnsmelónan er komin inn í ísskáp og græna teið oní krukku, síðan ætla ég að hlaupa niður og til araba vinar míns og verzla mér súkkulaðikex enda á ég það skilið svo ég er líka alveg viss um að ég verði svo helvíti dugleg að læra ef ég fæ mér kex !
Frasi dagsins : Ef ég sé með hattinn…
Frasi dagsins : Ef ég sé með hattinn…

<< Home