þriðjudagur, apríl 18, 2006

Le divertissement est le meilleur régime contre le poids de l'existence....

Alvara lífsins er byrjuð að banka á hurðina hér á Matta, eftir nokkra frábæra daga með íslensku lambalæri, páskaeggi og reiðinnar býsn af málsháttum tekur hversdagsleikinn við, grár og örlítið blár líka. Þræðir tilvistarinnar hafa verið að spinna vef sinn í hornum og skúmaskotum og Sartre situr hugsi á svip á arinhillunni og fylgist með. Hann er ágætur og hefur búið hér með mér frá upphafi þó svo að nærvera hans hafi sjaldan verið meiri en nú. Þetta er vinalegur karl, ekkert eins og maður hafði ímyndað sér áður en maður hitti hann en stundum gerir lífið manni þann grikk. Við höfum líka rætt ýmsa hluti en þó aðallega því sem tengist ábyrgð hvers og eins á eigin tilveru. Hann hefur kennt mér ýmislegt, meðal annars það að það var mitt val að skrifa þessa hugleiðingu í stað þess að skrifa ritgerð!

Uppgötvanir dagsins:
“Bömmer” er svona polysémique orð,
“poubelliste” er bara miklu skemmtilegra orð en “éboueur”