miðvikudagur, apríl 26, 2006

Úr öllum áttum

Hvað gerist þegar gullfalleg fljóð og fírar koma saman á svölum á 7. hæð í 7. hverfi Parísarborgar. Þær vopnaðar rauðum varalit, perlufestum og krulljárni og þeir jakkafötum, hárgeli og svalleika? Það er víst bara eitt svar við þessari spurningu og það er “Soirée Fatale”, kvöldið heppnaðist líka svona vel veðrið var frábært og fólkið falleg og skemmtilegt. Lífið gerist ekki betra!

Annars er skólinn bara byrjaður aftur og loftleysið sem honum fylgir, hélt ég myndi ekki lifa dag númer tvö af í skólanum en svo virðist sem sumir kennarar komi bara hressari út úr þessu verkfalli, aldeilis hamingja í gangi og ritgerðarskilatímamörk hafa svo gott sem verið gefin frjáls. Upp á móti kemur að við tökum upp þar sem frá var horfið fyrir verkfall og prófin verða á sama tíma og gert var ráð fyrir þ.e.a.s. eftir ÞRJÁR VIKUR!!! Er ekki í lagi með alla, það á sem sagt að skrifa þrjú þúsund ritgerðir og á sama tíma læra fyrir próf sem verða sennilega á á tímabilinu 16. maí til 16 maí. Sem sagt öll á einum degi!!! Ég segi nú bara “Ef ég sé með hattinn!” og vona svo að ég finni hann í tæka tíð.

Gott að dvelja ekki of lengi við svona leiðindarhugsanir, veðrið er yndislegt og ég veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga, já eða á hvað ritgerð ég á að byrja ha ha. Hvað gera bændur þá annað en að skella sér af bæ nánar tiltekið í Mýrina. Kíkti sem sagt í kaffi í Sænska húsið enda sennilega eini staðurinn í þessarri fallegu borg þar sem hægt er að fá venjulega uppáhellt kaffi. Eftir bollann, sólbað og samræður við fagra sambýlinga var haldið heim á leið en þó með stoppi á Ásnum enda besta falafel í bænum og erfitt að yfirgefa Mýrina án þess að kaupa sér eitt.

Spurning dagsins: Getur verið í lagi ef ég tek upp á því að hunsa ákveðna aðila sem beina afleiðingu af því að ákveðnir aðrir aðilar hafa hunsað mig áður og þar af leiðandi er einungis öfugt karma á ferð og ekkert hættulegt við það eða er ekkert til sem heitir öfugt karma og ég því búin að kalla yfir mig öldu af vondu karma?

Uppgötvun dagsins: Ég hef misst aðdáendur.