Pæling
Það er alveg merkilegt hvað það sem maður á að gera getur verið erfitt að gera...eins og að skrifa ritgerð. Hér sit ég og rembist eins og rjúpan við staurinn og reyni að finna tengingar og aftur tengingar í þessum heilu 31 línum sem ég hef um að ráða. Svo er bara spurningin er Valmont í alvöru ástfanginn eða er þetta allt hluti af vel skipulögðu plani sem hann er með í hausnum á sér? Var hann kannski einu sinni ástfanginn af Mme de Merteuil, er merki um fyrirlitningu í garð Mme de Tourvel ? Eða hvað, eða hvað, eða hvað! Fyrir mitt leyti nenni ég engan veginn að spá í þessu öllu saman, má ég ekki bara lesa bókina og síðan ákveða hvort mér fannst hún góð eða slæm og láta þar við sitja. Er það virkilega að þegar hann Laclos vinur minn skrifaði þessa bók þá gerði hann það með það í huga að hér sæti ég 224 árum seinna og kreisti úr mér 2000 orðum af pælingum rökstuddum með þessum 31 línum??!! Er það málið?
Ég held að ég salti þetta þangað til á morgun, það bíður mín fagurgrænn kjóll frá 18.öld inni í herbergi. Í kvöld verður farið í hann og farið í teiti!
Heilræði dagsins : Hress og ekkert stress
Ég held að ég salti þetta þangað til á morgun, það bíður mín fagurgrænn kjóll frá 18.öld inni í herbergi. Í kvöld verður farið í hann og farið í teiti!
Heilræði dagsins : Hress og ekkert stress

<< Home