Je suis en grève...et vous?!
Alors, qu’est-ce que je fais ces jours-là…pas grandes choses, parce-que… je suis en grève!
Já, skvísan er í verkafalli og mætir þar af leiðandi ekki í tíma, valdi ég að fara í þetta verkfall?...nei, en ég á ekki annara kosta völ þar sem mér er meinaður aðgangur að mínum líka annars notalega skóla. Get ekki viðurkennt annað en að þetta sé farið að verða frekar leiðingjarnt einkum vegna þess að ég skil með engu móti aðferðarfræða frakkans í þessum málum. Skil samt vel reiði ungs fólks gegn þessum nýju lögum sem verið var að setja í sambandi við ráðningarsamninga þess í framtíðinni, en með þessum lögum er ungt fólk sem er að fara á vinnumarkaðinn gert að vera á tveggja ára tímabundnum samningi sem má segja upp með 15 daga fyrirvara án nokkurrar sérstakrar ástæðu. Ekki glæsilegt! Elsku Villepin er enn og aftur að klúðra málunum, hvernig þessi maður helst í embætti er mér spurn!
Nóg um það, hér var svaka mega partý um helgina og nóg af fólki og skemmtilegheitum, skammarlegt magn af flöskum var síðan borið út í endurvinnslu daginn eftir og íbúðin var rústir einar. Enn er ekki búið að henda okkur út úr íbúðinni svo ég held að við séum hólpnar hér á Matta í bili. Gaman gaman, almenn vitleysa og með því!!
Og hana nú!
Rokkprik til allra sem mættu og voru svalir he he og til allra hinna sem eru ávalt svalir, jah jafnvel þó þeir búi í segjum....Vestmannaeyjum!

<< Home