Ouie, pourquoi pas!
Ég get ekki sagt annað en að helgin hafi verið tekin með trompi og svo virðist vera að hvar sem íslendingar koma saman ná þeir alltaf að magna vitleysuna upp í hvor öðrum. Úla la la la. Já loksins var haldið almennilegt partý á Matta Err, eins og svo oft gerist kenndi þar ýmissa kvikinda, þarna voru samakomnir íslendingar, frakkar, bretar, bandaríkjamenn og ástralir, já bara einn hrærigrautur en það er líka svo gaman. Vitleysan náði hámarki undir morgun og þó svo að þetta hafi ekki verið nógu fyndið til þess að leggjast í götuna, var samt mikið rætt og spáð í alla heimsins hluti en hvaða hlutir það voru mun halda áfram að vera ráðgáta! Ég segi bara: Áfram Ísland!
Áður en borgin var kvödd bili var gengið um bæinn til að skoða jólaljósin og svo fórum við nokkur í þetta frábæra parísarhjól sem er búið að koma fyrir neðst á Champs Elysee og það var alveg magnað að vera þarna uppi í myrkrinu og skoða ljósin í borginni.
Annars er ég bara núna komin heim og er búin að eyða deginum í að knúsa Bjartmanninn minn sem tók líka svona vel á móti mér og borða yfir mig af fiski og kotasælu. Auk þess að njóta þess í botn að vera gjörsamlega að kafna úr hita hérna inni þó svo að ég sé ekki í ullarsokkunum, flíspeysunni og með teppi yfir mér. Hlakka svo bara til að henda mér í rúmið, það verður sko munur að sofa svona einu sinni í rúmi sem er ekki með dæld í miðjunni og gormum sem stingast inn í mann. Fyrir utan ískrið sem vekur mann upp á nóttunni og yndislegu strákunum á neðri hæðinni sem geta einungis farið í sturtu á ókristilegum tímum. Já, ég er farin að sofa.
Ummæli helgarinnar: Skítur skeður!

<< Home