fimmtudagur, desember 22, 2005

Eldhushamfarir

Ekkert breytist hér frekar en fyrri daginn, er búin að hafa að rosalega gott núna og er búin að njóta þess að vera hér heima þar sem allt er til alls. Alltaf nóg að mat í ísskápnum, hiti í húsinu og standandi sturta. Gæti ekki verið betra. Jólin eru alveg yndisleg, núna vantar bara svolítinn snjó til að gera þetta ennþá jólalegra. Framkvæmdargleðin námslega hefur ekki verið upp á marga fiska síðan ég kom en ég er nú samt búin að vera nokkuð dugleg, nýtti tækifærið og þvoði öll fötin mín svo loksins allt svart sem á að vera svart, rautt sem á að vera rautt og svo framvegis, var alveg komin með ógeð á þessarri gráu slykju sem var yfir öllu, veit ekki hvort það er vegna lélegrar þvottavélar eða bara glataðs vatns en það mun bara vera ráðgáta eins og stendur. Já og það er ekki það eina sem ég er búin að gera til þess að koma mér hjá lærdómi, ó nei, er mín ekki bara búin að vera í eldhúsinu í allan dag að gera skemmtilega hluti. Er sko búin að búa til rauðkálið með hangiketinu, fullt af jólasíld og svo ógurlega mikið að kæfu svo ef einhver er svangur þá er bara best að kíkja við. Og hana nú!

En lífið er ekki bara dans á rósum svo það verður víst lesið á morgun, æi hvað er ég að kvarta þetta eru alveg ágætis bækur sem ég er með hérna ég meina hverjum finnst ekki gaman af miðaldarhetjum og þeirra raunum! Áfram með smjörið og svo er það bara púrtarinn á morgun með gömlum og góðum vinnufélögum.