föstudagur, apríl 29, 2005

Próftímapælingar

Það er margt að gerast í þessu heimi og einnig á litla Íslandi, minnimáttakenndin er alveg að fara með okkur stundum sem lýsir sér bara í utanríkisstefnu okkar, það er kannski tími til kominn að fá einhvern sjálfumglaðan til að sjá um þessi mál. Þá vonandi dregur úr smánarlegum atvikum eins og að styðja stríð og að við hefjum hvalveiðar að nýju án þess að vera að afsaka okkur fyrir Pétri og Páli.
Annars er mér alveg með spurn með lög-og dómgæslu þessa lands, ég hef sjaldan skilið og geri ekki enn Hæstarétt, það lítur út fyrir að stefna þeirra sé að vera alltaf ósammála Héraðsdómi, nema þegar útlendingar eiga í hlut. Alltaf skulu þeir milda dóma sem áður hafa fallið, og hann virðist líka taka heimsku sem góða og gilda vörn. Þetta er sem sagt allt í lagi, ef þú ert dæmdur sekur þá er bara að áfrýja til Hæstar. og bera því við að þú hafir verið svo “stupid” að þú bara vissir ekki hvort þú værir að eyða þínum eigin peningum eða peningum annarra! Hvað löggæsluna varðar þá finnst manni einhver hræðsla vera í gangi með að stinga fólki í steininn, ætli þeir séu enn þá svona beygir eftir Guðfinns og Geirfinns málið? Ég hef alltaf haldið að ef þú játar að hafa átt hlut í glæpsamlegu athæfi sérstaklega ef um líkamsmeiðingar er að ræða þá eigi að stinga þér inn, taka þig af götunni og svo framvegis. Það er orðinn eins hversdagslegur hlutur og að fá sér kaffi að lesa eða heyra í fréttunum að þessi og hinn hafi verið skotinn, barinn, stunginn o.s.fr, síðan er tilkynnt að árásarmanninum hafi verið náð og að lokum er botninn sleginn úr tunnunni; en honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu þar sem málið telst upplýst! Hvað er í gangi? Þetta mun ég seint skilja og ef einhver getur útskýrt þetta fyrir mér þá endilega láta í sér heyra.

Þar sem ég get því miður ekki borið við heimsku í prófunum og fengið hærri einkunn fyrir vikið er best að snúa sér að hlutunum, eitt próf búið og alltof mörg eftir. En það er ýmislegt sem gleður mann líka, bara í dag er ég búin að heyra þrjú ný lög með janfmörgum hljómst og það er kannski ágætt að draga það aðeins saman: Coldplay eru snillingar og rosalega heitir, Foo Fighters eru sveittir, veit ekki alveg hvort þeir eru sveittari, en eru greinilega búnir að finna sitt “sound” löngun fyrir því að skella sér á tónleika hefur einungis aukist. Lifehouse eiga sinn stað í mínum bókum, segi ekki meira um það!

Spurning dagsins : Hvar endar þetta allt saman?