mánudagur, maí 02, 2005

Gullnir dagar

Það var ekki ætlunin að þetta yrði einhvers konar nörralegt kvarthorn en er EITTHVAÐ ónörralegt við að sitja á rassinum allan daginn með tilheyrandi svitablettum og táfýlu og lesa fyrir próf? Nei! Merkilegt hvað manni getur fundist vera krónísk vond lykt af manni þegar maður er í svona aðstæðum, hef samt grun um að ofmikil seta í Odda spili þarna eitthvað inn í. Er annars búin með kvótann í súrrealískum- og tilvistarkreppulegum- og “ég hata að elska”-legum pælingum. Sýrnin náði hámarki í nótt þegar mér tókst með annars ágætri röksemdarfærslu að túlka rotnandi lík, uppblásið af illa lyktandi lofti sem frjóan jarðveg fyrir nýtt líf sem gæti haldið til í kúlunni sem loftið væri búið að blása út!... Enda fór ég líka bara heim!

Communication Breakdown, It's always the same, I'm having a nervous breakdown, Drive me insane!

Spakmæli dagsins : Ég gæti verið snillingur, ef ég aðeins legði mig fram við það!