Artí fartí
Hef skemmti mér mjög mikið síðustu daga að undirbúa próf í listasögu en nú eru þeir dagar víst taldir. Ekkert kom sérstaklega á óvart í dag en hefði miklu frekar viljað útskýra hugmyndina að baki mannablóðpylsu Journiac heldur en tvívíð form Vasarely á flötum fleti sem hafa enga merkingu aðra en að spila með augað. Þar hafið þið það!
Hef líka tileinkað mér ýmsa skemmtilega frasa eins og :
-Það er ekki svo mikið verkið sem er listin heldur hugmyndin og fílósófían á bak við verkið sem skipti máli!
-Já, það var einmitt þá sem bla bla sagði skilið við ...ismann og færði sig frekar inn í ...ismann sem tengist einmitt inn í ...ismann sem er runninn undan ...ismanum! Annars er erfitt að setja bla bla inn í þennan flokk þar sem ...isminn er svo afstætt hugtak.
-Með nöktu konunni var listamaðurinn ekki að koma með pólitíska yfirlýsingu heldur vildi hann einungis sýna smá hold þar sem honum þótti vöntun á því í þjóðfélaginu!
-Í bla bla Art stefnir listamaðurinn að því að viðfangsefni verksins sé alls ekki neitt. Annars væri hann á skjön við stefnuna!
Þetta er bara rokk!
Spakmæli dagsins : Þetta tekur allt saman enda...einhvern tímann.

<< Home