Taugaviðbrögð o.fl.
Ömurlegt hvað ljótleiki próflestrar getur fengið mann til þess að vera asnalegur, tók mér pásu í dag og skellti mér í bæinn til þess að ná mér í smá andans upplyftingu í formi kaffibolla. Nauðsynlegt að taka sér svona pásur! Er ekki fyrr komin út með kaffibollann í hendi þegar ég sé eitthvað álengdar sem fékk mig ósjálfrátt til þess að taka snarpa U-beygju (undirmeðvitundin greinilega meðvituð um prófljótleikann) og hverfa af vettvangi. Þessi snarpa beygja er síðan búin að hrella mig í allan dag! Af hverju gerist svona lagað?
Sjálfsuppgötvun dagsins : Já, maður er skarpur þessa dagana, en ekki nógu skarpur samt!

<< Home