Finndu taktinn þegar þú ert blár
Hey, get rhythm when you get the blues
Hey, get rhythm when you get the blues
Yes a jumpy rhythm makes you feel so fine
It'll shake all the trouble from your worried mind
Get rhythm when you get the blues

Þrátt fyrir grátt og kuldalegt andrúmsloft hér í borg vitleysunnar þá hefur mikil orka verið í liðinu síðastliðna daga. Mér tókst loksins að útvega mér stimpil á síðustu einkunnina mína sem tók aðeins nokkrar ferðir fram og til baka á göngum skólans í leit að skrifstofu og svo loksins þegar skrifstofan var fundin átti að biðja mig um að koma aftur eftir hádegi. Ég hélt nú ekki, og sannfærði ritarann um að hjálpa okkur núna og ekki eftir hádegi. Það tókst og viti menn að auki tók ég eftir því að erkihálfvitakennarinn hafði gefið mér vitlausa einkunn sem sagt of lága, þetta var einungis síðast hálmstráið í sambandi okkar en annan eins mann hef ég aldrei hitt. Nóg um það, vil aldrei sjá hann aftur!
Stuðið heldur áfram hér á bæ og nú eru komin upp mikil plön um að nýta jafnt virka daga sem helgidag til þess. Allt byrjar vel og mánudagskvöldi var eytt á þeim snilldarstað Scéne Bastille þar sem að þrjár franskar sveitir stigu á stokk, já rössum voru dillað og hausum hnykkt undir staðföstum tónum fransmanna. Aðalnúmer kvöldsins voru strákarnir í Clint sem spila þétt og örlítið pönkað rokk og hafa gaman af lífinu. Þriðjudagskvöldi átti líka að eyða í dimmum sal í skuggahverfi ljósaborgar undir dyggum takti strákanna okkar (rock and roll) en vinsældir þeirra fara vaxandi svo uppselt var á kvöldið, jæja best að láta það ekki draga úr sér við sjáum þá næst.
Mr. Cash var síðan heimsóttur í gær í bíóinu á Odéon og maðurinn er snillingur og ekkert annað, já og svo er Mr. Phoenix líka snillingur, það er svo lekkert í honum skiluru!!

Rokkprik fá þeir sem setja inn athugasemd (comment)!!

<< Home