Naflakusk kemur í leitirnar
Vorið er alltaf tími mikillar naflaskoðunnar enda tími kafla- og árstíðaskipta í lífinu. Það er líka merkilegt hversu mikið naflakusk kemur í leitirnar við þessa árlegu skoðun, hvað er maður eiginlega að spá með því að leyfa þessarri litlu holu að fyllast svona af efasemdum, afbrýðissemi, ábyrgðarleysi, sinnuleysi, leti, og guð má vita hvað. Þessu verður maður víst að taka með æðruleysi og lofa bótum og betrun hvort sem það gerist í þessu lífi eða því næsta.
......Now I only wish that I could show you - wish I could show a little soul. Wish I could show a little soul.
Já, það er bara hipp og kúl að vera til og naflakusk er og verður alltaf illa lyktandi, dauði og djöfull og partur af tilveru mannsins. Ágætt að koma þessu bara frá sér og hætta síðan að væla yfir því. Því inn á milli þess sem maður skefur út kuskið með skeið þá gerist ýmislegt skemmtilegt og ekki skemmtilegt og það er nóg til þess að þetta eigi rétt á sér. Frábært að vera búin að koma þessu á hreint.
Svo vil ég líka þakka bestu vinkonu fyrir frábæran mat og skemmtun sem var svo löngu tímabært. Þetta rokkaði feitt og við líka, enda tókum við okkur vel út í kringum þessa leðurklæddu rokkspaða, svo er bara að fara að æfa sig svo maður vinni sjómanninn næst! Hipp og kúl, bloody fantastic, over and out.

<< Home