1972
Hvernig var þetta föstudagar til.........æi man þetta aldrei en föstudagur er allaveganna ekki flöskudagur, ekki í dag. Sem er bara hipp og kúl. Hef bara lítið gert í dag annað en að sitja á rassinum og sjóða saman gildar setningar he he, allt tekur sinn tíma og þrátt fyrir að ég hafi ekki verið sú manneskja (ótrúlegt en satt) sem svaf yfir bókunum má alltaf á sig rósum bæta. Og það verður líka gert.....en bara seinna, nú er komin pása, spái kvikmyndahátíð og e-u skemmtilegu. Svo langar mig til þess að bæta því við að ég ráðlegg fólki frá því að ætla að uppgötva leyndar hliðar á Jeff Buckley á meðan það er að læra í kringum annað fólk þar sem að vinurinn er algjört villidýr VILLIDÝR.............tjái mig ekki meira um málið, hver og einn verður bara að uppgötva.
Pæling dagsins : Mig mundi aldrei langa að vera með stimplað 1972 þvert yfir rassinn á mér, þess vegna finnst mér líka leiðinlegt þegar aðrir gera það!
Pæling dagsins : Mig mundi aldrei langa að vera með stimplað 1972 þvert yfir rassinn á mér, þess vegna finnst mér líka leiðinlegt þegar aðrir gera það!

<< Home