þriðjudagur, apríl 05, 2005

Hverjar eru líkurnar á því að......

Hverjar eru líkurnar á því að þegar ég sest niður á eftir að ritgerðin sem ég á helst að vera búin með renni bara ljúflega út úr mér eins og heit munnræpan, að stökkbreytta barkabólgan verði farin þegar ég mun standa fyrir framan Cortesinn og væla út úr mér nokkrum aríum, að sólahringurinn lengist um helming svo ég geti gert allt sem ég þarf að gera, að vegna leti kennara verði engin próf í vor, að sálartetrið fái brátt sól og yl og að ég verði rík svo ég geti borgað flugið mitt til Parísar?

Ætla að prófa þetta, það verður að halda í vonina, hún er það eina sem eftir er!