Þetta er alveg hreint út í hött!
Fór í leiðinlegustu ökuferð allra tíma í dag, hún var reyndar mjög fín umferðarlega séð en ég var með honum pabba og hann var að hlusta á talstöðina þar sem enginn annar en Ingvi Hrafn var að tjá sig og það er alveg ömurlegt að hlusta á hann. Mér finnst það synd þegar fólk sem vinnur á fjölmiðlum leyfir sér að vera svo óábyrgt í tali og án nokkurns rökstuðning, eins og reyndin var í dag. Ég hef því miður enga þolinmæði á að hlusta þegar sá sem talar bunar út úr sér fösum eins og "ég bara, ég bara, ég bara, skil ekki svona" (með ofuráherslu á fyrsta atkvæði orðsins skil) og "þetta er alveg hreint út í hött" en getur svo engann veginn útfært þetta nánar og kallar síðan alla sem ekki hafa sömu skoðun og hann "aumingja"............er þetta útvarpsmennska? Og svo annað Ingvi Hrafn ef allir frétta-/fjölmiðlafólk eru aumingjar eins og þú ítrekaðir svo oft, ertu þá ekki bara aumingi sjálfur?
Þetta fór alveg með mig, sem betur fer bjargaði síðan Óli Palli látúnsbarki restinni af bílferðinni.
Sit hins vegar núna á blístrinu, borðaði alveg yfir mig áðan, ekki skrítið þar sem sushi var á boðstólnum. Maggi eðalfrændi kom hér um fimmleytið vopnuðum eðalhníf og grjónum og svo var tekið til hendinni og nú kann ég sem sagt að gera sushi og skera niður allt sem þarf til, er bara nokkuð góð í að gera fiskinn, en við vorum ekkert að spara til og vorum með þrjár tegundir af fiski plús krabba og svo grafið naut og gúmmelaði, en þetta tók nettan tíma samt, en var vel þess virði. Nú þar sem ég er orðinn útlærður sushi meistari er aldrei að vita nema ég kalli til veislu einhvern tímann. Verð samt að útvega mér svoan eðalhníf er alveg viss um að það sé lykillinn að velgengninni!

<< Home