mánudagur, mars 28, 2005

Bootylicious

Jæja, nú er nokkurra daga frí senn lokið og því viðeigandi að taka stöðu mála hmmm

-1stk skattskýrsla komin í hús með rafrænum hætti (mikið skilningarleysi þar af minni hálfu)
-1stk fyrirlestur tilbúinn í hausnum á mér, á bara eftir að henda honum í power point (ha ha ha er SVO ekki búin, þrátt fyrir fallegar hugsanir)
-hálft páskaegg hefur runnið ljúflega niður (að ótöldum öllum litlu páskaeggjunum sem liggja á stofuborðinu en þau eru ekki talin með því það er enginn málsháttur inn í þeim, er það ekki ?!)
-1stk verkefni komið vel á veg (en ekki búið, krap!)
-engan veginn byrjuð á öðru stk verkefni (krap krap!!!) þrátt fyrir fögur fyrirheit.
-hef ekki enn fundið tilgang minn á þessari jörð (krap!)........hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi og hver er ég? (sungið með angistarfullri röddu og mikilli expression í andliti)
-hef ákveðið að reyna ekkert að verða mjó þar sem það gengur ekkert sérstaklega heldur verða heilbrigð(ari)....miklu sniðugra og líka skemmtilegra, hef þar af leiðandi tamið mér nýjan og jákvæðari hugsunarhátt varðandi ýmsa líkamsparta þ.e.a.s. er ekki með stóran rass heldur er ég bootylicious, hef heldur ekki bumbu heldur bara mjög djúpan nafla, er ekki með undirhöku heldur kringlótt andlit o.s.fr. einkar jákvætt í alla staði.
-einn draumur þar sem mig dreymdi að ég hefði gleymt “faðir vor-inu”, ætli undirmeðvitundin sé loksins að átta sig á trúleysi mínu eða er það öfugt!
-hraðfletting í gegnum valda kafla bíblíunnar svo nú veit ég allt um páska og hvað gerðist á hverjum degi og svoleiðis, einkar skemmtileg fyrst það eru nú páskar. Veit hins vegar enn ekki af hverju við borðum páskaegg og fáum málshátt.
-fékk ágætis málshátt í ár Sá syndir vel er öðrum upp heldur, amma sagði hann eiga við mig og kannski er það rétt hjá henni
-fann fyrir söknuði, sérstaklega einn daginn
-tók smá diskóstemmningu með Heiðrúnu pæju, glimmer glimmer

........hafði það svakalega gott