Sjálfsbjargarviðleitni, ó já.
Er búin að vera í kolaportinu í allan dag að selja ýmist skemmtilegt til að safna fyrir menningarferð til Parísar með bekknum mínum í maí, held barasta að við höfum staðið okkur með sóma því við seldum næstum allt. Alveg samt ótrúlegt það fólk sem maður rekst á þarna og flestir harðir prúttarar en ég er hörð á móti svo lét ekkert vaða yfir mig og seldi flest á uppsprengdu verði, merkilegt hvað fólk notar uppgert sakleysi og tungumálaörðugleika til þess að spara sér hundraðkallinn.
Kom svo heim alveg rosalega svöng og byrjaði að gramsa í skápunum eftir einhverju að borða. Var alveg búin að missa vonina um að eitthvað væri hægt að finna og sá fram á matarlaust kvöld, svengd og volæði. En ákvað að kíkja einu sinni enn í ísskapinn og nú með öðruvísi hugarfari en áður og viti menn, maturinn er að verða til. Einbeitti mér að krukkumat og fann þar ýmislegt eins og fetaost, ætisþistla, sólþurrkaða tómata, og skemmtilegtheit eins og sveppi og spínat, gramsaði svo aðeins í frystihólfinu og fann þar tortillur og þið getið nú ímyndað ykkur afganginn.............jæja, er að fara að taka rjúkandi sjálfbjargarviðleitnispissu úr ofninum! Ákvað samt að sleppa hvítlauknum sem hefði sett punktinn yfir i-ið þar sem mín ætlar að kíkja út í kvöld. Gott plan!?

<< Home