Hmmm....þar með var kvöldið búið!
Hmmm......veit ekki alveg hvað er að gerast hérna dagurinn er búinn að fara í veikindi og aðgerðarleysi nú verður þessu að linna!!
Var annars í góðu stuði í gær svona seinnipartinn, vaknaði alveg tóm í hausnum og var að hugsa um að gefast upp á lífinu meðan ég sötraði morgunteið en svo má það víst ekki svo ég skellti mér í glimmerbol og fór í skólann, þar var verið að rökræða Ibsen og hann er bara alveg ágætur svo var sátt, skundaði þar næst í Kanadíska Sendiráðið þar sem var vel tekið á móti okkur og sendiherrann er svona líka svaka hress kall, skemmdi ekki fyrir að allir fundu sameiginlegan grundvöll í því að úthúða bandaríkjamönnum he he. Bjórinn og rauðvínið rann svo líka ljúflega niður og allir orðnir frekar hressir þegar rölt var út og skundað á Brennsluna, þar var slakað á hnippt í nokkra breta og bjórinn teygaður, skundaði svo til Möggu vinkonu og eyddi góðri stund í góðum hópi og svo var það bærinn en fór fljótlega heim, heilsan ekki upp á sitt besta og alltaf slæmt þegar dyraverðir borgarinnar eru farnir að hafa orð á ástandi manns undanfarnar helgar. Þar með var kvöldið búið!

<< Home