miðvikudagur, mars 02, 2005

Uppsagnarfrestur enginn!

Vírus veikilíus er alveg búinn með mig núna, hef allan hug á að segja honum upp störfum hið fyrsta;

Herra Vírus Veikilíus
það er mér sönn ánægja að tilkynna þér að þjónustu þinnar er ekki óskað lengur í hýsli #604579, komið hefur í ljós að þú virðist vera einum of hæfur til þess að sinna þessum hýsli og veldur honum því einum of miklum ama.
Uppsagnarfrestur er því miður enginn, vinsamlegast yfirgefið svæðið tafarlaust.

Virðingarfyllst Nefndin

[Innskot Nefndar: megum vér benda þér á Herra Vírus að hýsill er sjaldan/aldrei sérlega ánægður þegar þið vírusar gerið vart við ykkur annað hvort rétt fyrir helgi eða um hana miðja, það virðist yfirleitt hafa slæm áhrif á skapgerð hýsils og endar í flestum/öllum tilvikum með brottvikningu vírusar.]

líst bara ágætlega á þetta, held núna að líf mitt fari að verða aðeins bjartara og skemmtilegra ha ha ha